Aðalvalmynd

Hittingur!!!

17. mars 2008 klukkan 20:44
Kæru fermingarsystkiniBrosandi.


Ætlum að hittast næsta fimmtudag - skírdag í faktorshúsinu kl. 21. Allir koma með sitt að drekka og eitthvað að narta í ef þeir vilja!


Þetta partý er að sjálfsögðu eingöngu fyrir fólk úr okkar eðalárgangi en makar eru auðvitað velkomnir ef þið nennið að hafa þá meðGlottandi. Ég hins vegar hef ekkert val en það er bara mitt vandamál!


Vonandi mæta sem flestir og endilega látið berast til sem flestra!



Stuðkveðja Bubba.


ps. Faktorshúsið er húsið við hliðina á æskuheimili Helgu og ætla foreldrar hennar að vera svo elskuleg að lána okkur það þetta kvöld með von um góða umgengniSaklaus. Og Eva til lukku með daginn í dagKoss

15 ára femingarafmæli

21. febrúar 2008 klukkan 19:16
Jæja gamla lið Glottandi

Nú í ár eru komin 15 ár síðan við fermdust og við Helga voru að pæla, hvort þið sem komið vestur um páskanna eða búið hérna í þessum fallega bæ Ísafirði, hafið  áhuga að skemmta ykkur saman eitt kvöld ?????

hlökkum til að heyra í ykkur

BrosandiBrosandiBrosandi

Getur verið...

13. nóvember 2007 klukkan 13:15
...að hún Heidý sé ólétt?
Heyrði þessu fleygt en veit ekki hvort þetta er rétt. Ef svo er þá mun ég selja þetta dýrara en ég keypti þaðGlottandi

Fjölgun

22. október 2007 klukkan 10:09
Bubba og Atli eru búin að fjölga mannkyninu um eina stúlku. Þetta gerðist að morgni hins 11.október.
Til hamingju vísitölufjölskylda!

Myndirnar

13. september 2007 klukkan 13:47
Var að setja inn nöfnin við myndirnar svo fólk eins og Stjáni og Kristrún geti áttað sig á hverjir eru á myndunum.
Reynum að halda smá lífi í þessari síðu.

Eyrún

P.S. Ég er ennþá að bíða eftir að myndirnar frá fyrsta hittingnum og slideshowið verði sétt hérna inn.

Kæru félagar nær og fjær...

23. mars 2007 klukkan 20:04
Fleiri óléttufréttir!!

Hildur Sigurðar og Björn eignuðust 17marka og 54 cm strák í gær. Innilega til hamingju kæra vinkona :) Hér er síðan þeirra.. http://barnaland.is/barn/59373/ Get ekki búið til beina slóð á hana hér í þessari gömlu tölvu :(

Já svo er víst Jóhann Gunnar og Atli Þór komnir með krakka númer 2. Engin smá frjósemi í gangi! Sá Jónínu svo út á flugvelli og hún er alveg að springa greyið...kunni nú ekki við að bregða þér eða hrinda þér Jónína eins og þú varst að biðja fólk um ;)

Það eru ábyggilega fleiri óléttir eða búnir að eiga krakka sem ég veit ekki um...endilega að koma með fréttir hér inn...og biðja Baldur um aðgang...líka hægt að setja emailið sitt hér í komentin og við sendum ykkur aðgang ;)

Bestu kveðjur úr snjónum á Ísafirði.

Vonandi sér maður sem flesta um páskana ;)

Kv Kristín.

Ný síða og læti

03. mars 2007 klukkan 18:42
Nú er kominn tími á að skella upp nýrri árgangssíðu á flottasta bloggkerfi landsins. Löngu orðið tímabært. Svalur
Ef þið viljið fá notanda, sendið mér póst á baldur(hjá)bloggar.is og ég redda ykkur eins og skot.

Hrækjum nú í lófana og höldum úti lifandi síðu. Muna bara að skola lófana svo.

Viltu vera með?

Sendu póst á baldur(hjá)bloggar.is og þú færð notandann um hæl. :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Swine flu Funny Images, Every Girl's Dream Man Funny Images, What's Changed this Decade Funny Images, Gangstas Funny Images, Insane body mod Funny Images, Beware of invisible cows